Bjöggsterinn
Er virkilega komiđ ađ ţessu !!!!!IAB
Mér brá heldur betur í brún þegar ég vaknaði í gærmorgun og fór og gerði mín vanalegu verk að morgni til s.s. að fara að pissa og svona nema hvað...það byrjaði að blæða og mín fékk hálfgert sjokk!!!! ég hringdi í ljósuna mína til að spyrja hana út í þetta og hún vildi að ég færi upp á sjúkrahús í tékk, sem ég og gerði.Þar var ég sett í mónitor (sem var eðlilegur) og sónar (sem var líka eðlilegur) :) ekkert nema gott um það að segja. Því næst skoðaði læknirinn mig og sagði mér að það yrði allavega engin fæðing Í DAG!!! ég varð nú voðalega kát með það þar sem það er ekkert klárt hérna heima til að taka á móti þessum litla kút ef hann skyldi nú álpast í heiminn fyrir tímann.
Ég eyddi mestum deginum í að hafa áhyggjur og hugsanlega finna "drauga"verki eða alvöruverki...er ekki alveg viss...kannski var þetta bara allt í hausnum á mér :/ Síðan skellti ég sæng, kodda, rúmteppi og stuðningskanti í þvottavélina svona just in case að kríli litli kæmi.
Í nótt var ég síðan alltaf að vakna og við minnsta verk þaut upp í huga mér...JÆJA NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞESSU!! en svo gerðist ekkert meira og ég sofnaði aftur. Þetta var frekar svefnlaus nótt og aðgerðarlítil hehe en vááá hvað ég var stirrð, ég gat mig hvergi hreyft. Ef ég álpaðist til að liggja á bakinu, þurfti ég að biðja um aðstoð til að velta mér yfir á hliðina, svo var það ekki nógu gott og þá vildi ég leggjast aftur á bakið og svona gekk þetta í alla nótt með herkjum og dæsi og ááái :/
Núna er ég búin að setja þessi fáu föt sem ég hef hjá mér fyrir svona nýfætt skinn í þvott og þá er bara að bíða :D
jæja ég held ég hafi þetta þá ekki lengra í bili
Bjöggsterinn kveður að sinni án verkja og samdrátta sem er bara gott hehehe
Iđjuţjálfi!!!IAB
Eigum við að ræða þetta eitthvað!!!! eee já ég er sko orðin iðjuþjálfi. Ég náði að útskrifast frá Háskólanum á Akureyri sl. laugardag (13.júní) sem iðjuþjálfi og geri aðrir betur hehe ;) Úff tilfinningin við að vera loksins búin eftir 5 ára, langt og strembið nám er ....tjahh ég er ekki alveg búin að átt mig á því ennþá. Finnst ég ekkert hafa breyst og finnst ég bara vera í sumarfríi og bíða eftir erfingja nr. 2 :D bara snilld víííí. En eins og ég er búin að segja við marga að þá fatta ég þetta ábyggilega ekki fyrr en í haust þegar ég ætla að mæta aftur í skólann hehe. En váááááá hvað ég á eftir að sakna bekkjarfélaga minna úfff, en til allrar hamingju er búið að plana hitting bæði fyrir þá sem eru fyrir sunnan og svo þá sem eru hérna fyrir norðan. Síðan verður allavega einu sinni á ári hittingur fyrir alla þar sem við getum knúsað hvort annað og slúðrað eins og okkur er einum lagið hehe.
Í dag er fyrsti dagurinn sem ég geri bókstaflega ekki neitt!!! ég sit hérna í nýja lay-z boy sófanum mínum með tölvuna í fanginu, kveikt á borðviftunni (þar sem það er óendanlega heitt hérna) og sörfa um á netinu, sem sagt....gerandi ekki bofs :) svona á þetta að vera híhí
mig langar síðan í lokin að þakka öllum þeim sem studdu mig í gegnum þessi herlegheit (5 ár úff hehe) og enn frekar þeim sem komu og áttu með mér glaðan dag á laugardaginn (útskriftin) eða bara um helgina. Ég þakka kærlega fyrir mig og þetta var æðislegt!!!!!! kossar og knúsar á alla...þið vitið hver þið eruð
BumbuBjöggsterinn kveður því að sinni með bros í hjarta
Nýjustu fréttir af međgöngunni :)IAB
Jæja þá er ég komin 31 viku og 4 daga :).
Í morgun fór ég í mæðraskoðun og allt gekk vel en þar sem ég "gleymdi" að setja inn upplýsingar úr síðustu mæðraskoðun sem var þann 20.maí að þá ætla ég bara að koma með þær upplýsingar líka ;)
20.maí --> 28 vikur og 2 daga:
bl.þr. 130/70
örlítið magn af próteini í þvagi (ekkert til að hafa áhyggjur af)
hæð legbotns: 26 cm (þ.a.l. kominn upp fyrir neðri mörkin)
fósturhljóð/hjartsláttur 140-150 (einstaklega hraustur gaur hehehe)
28.maí --> 29 vikur og 4 dagar - vaxtarsónar:
Legvatn og flæði í gegnum streng = eðlilegt
Vöxtur litla pjakks mældist -4% (4% vaxtaseinkun - sá tók aldeilis kipp síðan síðast, úr 14 í 4)
síðan mun ég fara þann 25.júní í annan vaxtarsónar til að ath hvort pjakkurinn sé ekki búinn að taka annan góðan vaxtarkipp ;)
9.júní --> 31 vika og 4 dagar:
bl.þr. 120/60
þvag - ALVEG HREINT OG FÍNT HEHE
hæð legbotns: 28 cm
fósturhljóð/hjartsláttur: 140-150
Ég er einnig byrjuð í sjúkraþjálfun og OMG eigum við að ræða sársaukann og kraftinn í skvísunni sem er að nudda mig í tætlur :S jæææææks...en allavega þrátt fyrir mjög auma og sára vöðva að þá fann ég strax mun á mér eftir fyrsta tímann :)
Þannig er nú það í bili og okkur heilsast vel....Daði er alveg hryllilega spenntur!!!! og getur vart beðið eftir litla bróður sínum sem hann ætlar sko að kenna að hjóla og lesa þegar hann kemur hehehe
Ég ætla því að segja þetta gott í bili og set inn hérna næst í kringum 25.júní eða eftir næsta vaxtarsónar ;)
Bjöggsterinn og pjakkur kveðja að sinni
Smá update af međgöngunni ;)IAB
Jæja eins og ég greindi frá í síðustu færslu átti ég að fara í vaxtarsónar....sem ég og gerði og er ég nú komn 26 vikur + 5 daga :)Útkoman var þessi:
- Legvatn og flæði í gegnum streng = eðlilegt
- Vöxtur litla pjakks mældist -14% (0% er meðaltalið; -% er merki um smávaxið fóstur og +% er merki um stórvaxið fóstur) en svo lengi sem litli pjakkur fer ekki niður fyrir -18% að þá er allt í lagi.
- Ég á að koma aftur í vaxtarsónar eftir 3 vikur eða þann 28.maí.
- Blóðþrýstingur var fínn eða 125/65 (hjúkkan sagði að ég væri eins og lömbin í haga hehehe)
Hjúkkan sem ég talaði við var ekkert rosalega hrifin af því hvað ég haltraði mikið og fór að spyrja ýmissa spurninga. Í ljós kom að hún vildi að ég pantaði tíma hjá kírópraktor, bæklunarlækni og færi í röntgenmyndatöku af grindinni minni því henni litist ekkert á þetta hjá mér.
Hún sagði að þrátt fyrir sjúkraþjálfunina, sem ég þyrfti að öllum líkindum að vera í það sem eftir er, ætti ég að reyna að fá eitthvað gert við þessum kvillum mínum því þetta gengi sko ekki.
Áður en ég fer aftur í vaxtarsónar mæti ég í mæðraskoðun þann 20.maí en þá þarf ég að vera búin að fara til heimilislæknis og fá hann til að skrifa beiðni fyrir mig í sjúkraþjálfun.
jæja þetta er þá gott í bili,
Bjöggsterinn og bumbubúinn kveðja í bili
Smá fréttir af međgöngu minniIAB
Jæja ég var sem sagt hjá ljósunni minni í morgun og er ég komin 25 vikur og 2 daga á leið :) blóðþrýstingur og þvag var í lagi sem og blóðsykurinn - ekkert nema gott um það að segja. En þegar ljósan fór að mæla legbotninn þá komst hún að því að hann var alltof lár miðað við þessa meðgöngulengd eða 22 cm og þar sem það var ekki alveg nógu gott ákvað hún að panta tíma í vaxtarsónar fyrir mig í næstu viku til að ath hvort það væri ekki allt í lagi. Hún sagði mér að það gætu verið ýmsar ástæður fyrir því að þetta væri svona en þar sem Daði hafi verið svona nettur í fæðingu að þá hefði hún nú ekki miklar áhyggjur af þessu en hún yrði að vera viss. Hún bað mig vinsamlegast um að nota allan þann frítíma sem ég hef til að liggja útaf og leyfa öllu að flæða um (eins og hún sagði) til að ath hvort legið jafni sig ekki.
Síðan lét ég hana vita að ég hefði verið á hækjum um helgina þar sem grindargliðnunin hefði verið mjög slæm og sagði hún mér að panta tíma hjá heimilislækni til að biðja hann um að skrifa beiðni í sjúkraþjálfun fyrir mig. Ég á svo að koma aftur til hennar 20.maí en eftir það er hún hætt og ég fæ nýja ljósu. Hún sagði að þar sem það væri að sumarið væri að koma myndi verða mikil rótering á starfsfólki og því ekki víst að ég hafi alltaf sömu ljósuna fram á fæðingu :(
Þannig að...núna reyni ég að nota "frí"tímann minn í að liggja útaf með tærnar upp í loft en það er MJÖG erfitt þar sem lokaverkefnisvinnan er á fullu og ekki langt eftir í lokaskil (15.maí). Það er því mikil og ströng vinna framundan og býst ég nú ekki við að ég geti legið mikið útaf. En ég ætla nú samt að reyna og verð að vona að lokaverkefnasystur mínar skilji þetta ...sem þær gera sko alveg því þær eru búnar að vera svo skilningsríkar frá byrjun.
jæja þá held ég að þetta sé gott í bili...þar til næst
Bjöggsterinn kveður að sinni
Ć ţetta er svo sćttIAB
I JUST NEED A NAP
An older, tired-looking dog wandered into my yard.
I could tell from his collar and well-fed belly that he had a home and was well taken care of.
He calmly came over to me, I gave him a few pats on his head;
He then followed me into my house, slowly walked down the
Hall, curled up in the corner and fell asleep.
An hour later, he went to the door, and I let him out.
The next day he was back, greeted me in my yard, walked inside and resumed
his spot in the hall and again slept for about an hour.
This continued off and on for several weeks.
Curious I pinned a note to his collar: 'I would like to find out who the owner of this
wonderful sweet dog is And ask if you are aware that almost every afternoon
your dog comes to my house for a nap.'
The next day he arrived for his nap, with a different note pinned to his collar:
'He lives in a home with 6 children, 2 under the age of 3 - he's trying to catch up on his sleep.
Can I come with him tomorrow?
Smásaga...IAB
ég varð bara að deila þessari sögu með ykkur sem ég fann á netinu...Það var einu sinni lítill spörfugl sem ákvað að fljúga ekki
Suður á bóginn þegar haustaði.
En það kólnaði í veðri og litla fuglinum varð kalt.
Þá flaug hann af stað. Á leiðinni lenti hann í éli og hlóðst snjór á vængina
Svo fuglinn féll til jarðar og hafnaði í húsagarði á bóndaæ.
Þar lá hann í snjónum og var alveg að krókna þegar belja gekk framhjá
og skeit á hann. Fuglinn hélt að nú væri öllu lokið,
En skíturinn yljaði honum og brátt varð hann svo kátur
að hann fór að syngja.
Þá kom köttur sem heyrði til hans, skóf af honum skítinn
og át hann.
Þessi saga segir okkur að:
- Sá sem skítur á þig er ekki endilega óvinur þinn.
- Sá sem kemur þér úr skítnum er ekki endilega vinur þinn.
- Ef þér líður vel í skítnum, hafðu þá vit á því að halda kjafti
Ćtli sé kominn tími á nýja fćrslu??IAB
jæja sælt veri fólkið, gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla :)
Þessa dagana er ég í verknámi í Glerárskóla í 8 vikur (er að ljúka minni 3 viku) og gengur það mjög vel...allavega finnst mér það hehe, spurning hvað leiðbeinandanum finnst en ég fæ nú að vita það svona nokkurn veginn á mánudaginn því þá er stöðumat með kennaranum úr skólanum (sko Háskólanum).
Lokaverkefnið mitt (okkar stelpnanna) er komið af stað og í gærkveldi lögðum við spurningalista fyrir hóp af fólki og fengum við 10 svaraða lista til baka. við þurfum að fá 30 stk og því verðum við að reyna að troða okkur inn á fleira fólk :S Þegar verknáminu lýkur kemst lokaverkefnisvinnan á fullt skrið en núna er hún frekar losaraleg, því miður :(
Í næstu viku á ég að skila af mér fyrsta kaflanum í verkefninu til hinna stelpnanna og við skeytum okkar hlutum saman. Ég þarf heldur betur að spíta í lófana því ég er ekki byrjuð *roooooðn*. Ég er búin að skrifa stórum stöfum inn í dagbókina mína (þar sem ég er ofboðslega skipulögð hahaha) að um helgina ætla ég að ljúka við pappírsvinnu vegna stöðumats og byrja að vinna í lokaverkefninu. Því ég veit alveg hvernig ég er eftir vinnu frá 8-16....ÞREYTT...en það fer nú kannski að breytast því þá er ég komin yfir "flugtakið" í ástandinu mínu hehe;) og mun mjög líklega eða vonandi fljúga mjúklega á leiðarenda :)
Jamm þeir sem geta lesið á milli línanna hafa mjög líklega rétt fyrir sér... ég er að fjölga mannkyninu í kreppunni....MJÖG SNIÐUGT HAHAHAHA.
Jæja ég held þetta sé gott í bili
Lifið heil og gerið ekkert sem ég myndi ekki gera
Bjöggsterinn kveður
Ég á sko afmćli í dag.... og hvađ er ég ađ gera...IAB
Jú eins og svo oft áður .....AÐ LÆRA FYRIR PRÓF!!!! En ég næ að hugga mig við það að þetta er SÍÐASTA PRÓFIÐ sem ég tek í Háskólanum á Akureyri vúhúúúúú ég er loksins að verða búin með námið mitt :) Denni þarf að vera vinna í dag frá kl.8-16 og er ég því heima að læra með Daða frammi að horfa á sjónvarpið. Denni fór í gær á bókasafnið og leigði fullt af teiknimyndum fyrir Daða svo hann myndi ekki trufla mig við lærdóminn. Ég þarf svosum enga hjálp við truflun því ég er alveg fullfær um að finna mér eitthvað annað að gera en að læra hahaha
En ég ákvað nú samt að vera ekki bara að kvarta í þessu bloggi og kemur þá að því góða og skemmtilega.
Í gær (föstudag) voru litlu jól hjá bekknum mínum og eldaði ég mexíkóska súpu og bakaði köku :) ég ákvað að hafa þetta svona hálfpartinn afmælisveislu líka hahaha nema bara þetta var ekki heima hjá mér í dúkkuhúsinu mínu hahah. Ég fór því til bekkjarsystur minnar með stútfullan risastórann pott af súpu, köku og fullan plastkassa af hinu og þessu :) Fólkið var svona líka rosalega hrifið af súpunni og kökunni að það heimtaði að ég færi nú að halda upp á afmælið mitt reglulega hahaha. Síðan þegar litlu jólin/afmælið mitt var búið fór ég heim með ALLTOF MIKIÐ af súpu og ákvað því að bjóða nokkrum vinum í kvöldmat. Ekki leyndi ánægjan sér þar heldur og allir fóru heim saddir og sáttir.
Jæja þetta er orðið gott í bili...best að fara læra
Kveðja Bjöggterinn afmælisbarn:D
